|
15.04.2009 21:06:11 / selma-97-12
hæ í dag fór ég bara í skólann eins og venjulega og eftir skóla þá labbaði ég heim ´fékk mér að borða og fór svo á æfingu. ég fór á línuskautum á æfingu vegna þess að ég var að verða of sein og ég var með svo mikið dót, ég var með skó og fimleikafötin en ég missti annan skóinn á leiðinni og ég fattaði það ekki fyrr en ég var komin alveg niður og þá þurfti ég að fara upp alla brekkuna aftur vegna þess að skórinn var efst í brekkunniog þegar ég fór niður aftur þá fór ég hjá undir göngnum og ég datt á steinana og fékk sár á hnéð og ég fann alveg rosalega til en ég fór nipur í íþróttahús og kíkti á sárið. þá var búið að fossblæða úr sárinu og það fór í buxurnar. svo fór ég bara inní klefa og reyndi að klæða mig í fimleikafötin en það gekk svolítið illa þannig að ég bað Brynju að sækja plástur og hún kom með fimm plástra handa mér og ég setti þá alla á mig og fór svo á æfingu en ég gat ekki gert neitt þannig að ég fór bara heim og fór svo í afmæli og var að leika við frænku mína (Jenný). Svo fórum við heim og þá datt sjónvarpið ofaná bróðir minn og hann meiddi sig í fætinum. Bæbæ mamma er að fara að laga vírusinn og ég er að fara að horfa á America next top model eða hvernig sem maður skrifar þetta.
»
10.04.2009 11:41:18 / selma-97-12
hæhæ Gleðilega páska á sunnudaginn. En alla vega ég er að fara í bíó á eftir með mömmu og bróðir mínum á Monsters vs aliens. svo þegar við erum búin í bíóinu þá förum við til ömmu í mat en ég var líka í mat hjá hinni ömmu minni líka og þar var hamborgara-hryggur en um síðustu daga þá hef ég verið á línuskautum með Birtu og líka einu sinni með lísu og einu sinni með steinari. ég er búin að fara 2 sinnum í sund. Um helgina er ég að fara í sumar bústaðinn okkar og við verðum þar um alla helgina bara við og kannski amma mín. en það myndi vera miklu skemmtilegra ef frændi minn og frænka væru þarna líka. En það á alveg örugglega eftir að vera skemmtilegt. Mammma ætlar að fela páskaeggið mitt og líka handa bróðir mínum en ég er að fara í bíó núna bæbæ Gleðilega páska
»
05.03.2009 21:36:52 / selma-97-12
hæ sorry hvað ég er ekkert búin að vera að blogga mikið núna undanfarna daga eða vikur eða jafnvel mánuði. ég er búin að vera svo löt að blogg þannig að ég blogga kannski ekkert svaka oft. undanfarna daga er ég búin að að vera í skólanum og í fimleikum, þegar ég fer í tölvuna þá er ég bara að tala við einhvern inná msn og leika mér í tölvunni, en ég fer inná aðrar síður til dæmis melkorku síðu og birtu, arndísar og svo framvegis. en áðan þá var ég að passa bróðir minn. en ég ætla að segja frá öskudeginum, á öskudaginn var ég indversk stelpa og það var karoki keppni og ég var dómari í henni, líka Amalía í HH bekknum og Kristján í HG bekknum. eftir karoki keppnina þá fengum við pizzu og svo máttum við fara að syngja fyrir nammi og ég var með kolbrúnu og hildi. við fórum um næstum allan mosó, en svo þá vorum við að fara niður í skeifu og kolbrún mátti bara taka eina vinkonu með sér útaf því að það var ekki pláss fyrir okkur allar vegna þess að klara og brynja fóru líka þannig að hildur þurfti að fara en hún sagðist alveg geta farið með einhverjum öðrum. eftir að við vorum búnar í skeifunni þá þurftum við að fara á fimleika æfingu og við vorum minnir mig bara 5 en það voru 2 stelpur úr p1 sem voru með okkur líka ég var líka að keppa á íslandsmóti og það var á selfossi bæbæ nenni ekki að skrifa meira
»
08.02.2009 18:31:11 / selma-97-12
í gærkvöldi þá var pabbi að fara eitthvert með vini sínum sem heitir Gústi og þá ætluðum ég og mamma að hafa stelpukvöld og við leigðum mynd, keyptum snakk og lágum í sófanum. þegar myndin var ekki einu sinni háfnuð þá sofnaði ég í sófanum og mamma tímdi ekki að klæða mig úr fötunum og færa mig í rúmið mitt þannig að ég svaf í sófanum í alla nótt. um morguninn þá vakti bróðir minn mig klukkan eitthvað hálf níu og þá fór hann að horfa á barnatímann. fyrst fattaði ég ekki að ég væri í sófanum. ég fór þá til mömmu og sagði: af hverju færðir þú mig ekki úr sófanum og klæddir mig úr fötunum. þá sagði hún bara að hún tímdi því ekki út af því að ég svaf í svo værum svefni og eitthvað þannig. svo var ég að fara á æfingu klukkan 11 um morguninn og ég fór samferða kolbrúnu og klöru systir hennar kolbrúnar. við vorum að fara að æfa dansinn og við náðum að klára hann. æfingin var búin klukkan 1 og þá labbaði ég heim. þá fór ég út með mömmu, pabba og Arnari Daða, við fórum með snjásleðana okkar og við fórum þar sem Álafoss er og við vorum að renna okkur þar niður og það var mjög gaman. við vorum þar í einhvern klukkutíma og fórum svo heim og á leiðinni hitti ég Örnu Karen. þegar ég var komin heim fór ég í tölvuna og ég var inná msn og skrifa blogg. bæbæ Kveðja Selma
»
07.02.2009 18:27:25 / selma-97-12
í morgun þá var ég að keppa uppi í Hveragerði og við þurftum að keyra alla leið þangað. klukkan hálf níu þurftum við að leggja af stað út af því að ég átti að mæta klukkan korter í tíu og það tekur soldinn tíma að keyra. við keptum á dýnu og trampólíni, það gekk bara vel á því. við urðum í öðru sæti á dýnu og M11 var í fyrsta sæti á einhverju ég man ekki hverju. þegar mótið var búið þá fór ég beint í afmæli hjá bekkjarsystur minni henni Klöru. það byrjaði klukkan 12 og var búið klukkan 5. ég kom soldið seint í afmælið útaf því að mótið var búið klukkan 1 eða eitthvað. en það var mjög gaman í afmælinu, við fórum út að renna í garðinum hennar, skoðuðum kanínur og við fórum í einhvern eyðimerkur leik og ég má ekki segja hvernig hann er maður verður bara að prófa hann. þegar afmælið var búið fór ég bara heim og svo fór ég í tölvuna og skrifaði blogg og inná msn
kveðja Selma
»
03.02.2009 19:32:44 / selma-97-12
hæ í gær kom ný stelpa í bekkinn hún heitir diljá og hún er mjög skemmtileg. í dag var ég í skólanum og í fyrsta tíma var enska og við áttum að gera eitthvað með fleirtölu sem var ekki gaman. í öðrum tíma átti að vera náttúrufræði en það var í staðinn samfélagsfræði og við erum að læra um norðurlöndin og það er mjög gaman, við vorum að klára að gera blaðsíðurnar um Grænland og ég var mjög fljót að klára og Sonja líka og við fengum að fara á bókasafnið. þegar þessi tími var búinn þá var nesti, svo voru frímínótur og ég var að leika við Hörpu. eftir frímínótur þá var dans og fyrst áttum við að dansa dans sem heitir krossarinn og hann er mjög þreytandi og svo dönsuðum við djæf og tja-tja-tja og ég dansaði við Daníel, við dönsuðum líka dans ársins og svo var tíminn búinn og næsti tími átti að vera samfélagsfræði en það var í staðinn líkami mannsins og við vorum að læra um beinagrindina og við áttum að svara spurningum um það. svo kom matur og það sem var í matinn var hakk og spagetti, það var gott. svo fór ég út að leika mér við Hörpu,Kolbrúnu,Melkorku og svo bættust alltaf fleiri og fleiri við í hópinn þangað til að við vorum allar saman. þegar frímó voru búnar þá var sund og mér fannst ekki gaman. eftir sund var íslensku tími og við vorum í málrækt og við áttum að klára niður blaðsíðu 70 annars þurftum við að taka málrækt með heim og ég er bara á bls. 65
nenni ekki að skrifa meira bæbæ kveðja Selma
»
02.02.2009 15:56:06 / selma-97-12
hæ um helgina fór ég í bústað með mömmu, pabba og bróðir mínum. bústaðurinn var í Húsafelli og með okkur í bústaðnum voru frænkur mínar og frændi. þau heita gurrý, fönn og hödd. við fórum á laugardaginn og komum heim á sunnudaginn. það var mjög gaman um helgina við fórum í heita pottinn og gerðum margt skemmtilegt bæbæ Selma
»
30.01.2009 20:23:18 / selma-97-12
hæ í dag var frí í skólanum útaf því að það var starfsdagur. þegar ég vaknaði voru mamma og pabbi ekki farin í vinnuna þannig að ég vaknaði svolídið snemma útaf því að ég var með kvef og það var mjög óþægilegt þess vegna svaf ég ekki lengur. en þegar þau voru farin þá fór ég í tölvuna og inná msn og þegar mamma kom inná msn þá var ég að tala við hana. svo komu alltaf fleiri og fleiri inná og þá var ég að horfa á HSM 3(high shcool musical 3), þegar hún var búin þá kom birta inná msn og líka kolbrún og þá var ég að tala við þær. Svo fór ég út úr tölvunni og fékk mér að borða og ég fékk mér núðlur nammi namm. þegar klukkan var hálf fimm þá fór ég út í búð og keypti mér símaskraut og í búðinni hitti ég Gunnhildi ensku kennara minn og Ursulu myndmennta kennara minn. svo labbaði ég bara heim og þá var mamma og bróðir minn komin heim og þá fór ég í tölvuna í smá stund en þá var kominn matur og það voru fahitas í matinn og þegar ég var búin að borða þá fór ég aftur í tölvuni að skrifa þetta blogg og ég þarf að fara snemma að sofa vegna þess að ég er að fara á fimleika æfingu klukkan hálf tíu að morgni uppi í Gerplu að æfa dansinn út af því að við erum að fara að keppa 22. febrúar og það verður líklegast á Selfossi segir þjálfarinn minn. bæbæ kveðja Selma
»
29.01.2009 19:18:09 / selma-97-12
hæ í dag þá var ég í skólanum og það var nokkuð gaman. Eftir skóla þá var ég ekki að fara í fimleika þannig að ég labbaði heim með Birtu, Daníeli, Einari, Þórarni og Jóhanni. Þegar ég var komin heim þá fékk ég mér að borða og fór svo til Birtu að leika og við fórum út í snjóinn og alla leið niður í skóla til að renna okkur á svellinu. Það var mjög gaman og á leiðinni heim þá hittum við Guðbjörgu kennarann okkar og hún var að fara heim til sín. svo löbbuðum við heim og við fórum heim til mín og við fórum að spila og svo þurfti Birta að fara heim bæbæ Selma
»
19.01.2009 21:32:07 / selma-97-12
hæ ef einhver sem ég þekki kann að gera svona spurningar og svona um mig dót þá má hann/hún skrifa í gestabókina og REYNA allavega að útskýra fyrir mér vegna þess að ég kann ekki að gera þannig -Selma
»
19.01.2009 21:08:40 / selma-97-12
hæ í dag var samfélagsfræðipróf og þetta var sammvinnu próf og ég lenti með Arndísi og við gátum allar spurningarnar og ég held að við fáum eitthvað í kringum 8 og 9 í einkunn. þegar skólinn var búinn þá fór ég bara heim og svo kom birta og spurði eftir mér og við vorum að leika þangað til að við þurftum að fara á fimleika æfingu, hún byrjaði kl. hálf 5 og var búin kl. hálf 7. en þegar ég var að gera eitt súkahara þá rakst ég með hausinn í hnéð hans Zoltáns sem er þjálfarinn minn -Selma 
»
19.01.2009 14:34:23 / selma-97-12
í gær(sunnudag) þá fór ég í afmæli til ömmu klukkan 15:00 og þar voru kökur og alls konar matur svo beint eftir það var ég að fara í matarboð hjá hinni ömmu minni og við fengum kjötsúpu og í eftirétt þá var kaka og ís og ég var að springa, ég var búin að borða svo mikið. svo fór ég heim og í tölvuna og inná msn að tala við melkorku og ég var líka að blogga
-Selma
»
18.01.2009 09:43:33 / selma-97-12
komnar myndir í myndasöfn
p.s. mér finnst ´þær skrítnar
»
18.01.2009 09:11:38 / selma-97-12
hæ þetts er selma nýi eigandi þessara síðu, ég hef aldrei átt bloggsíðu svo ég kann ekki neitt á þær, ég skal reyna að skrifa nokkur blogg í hverjum mánuði
-selma 
»
|